Hönnun hverfisins

Að ferlinu koma fjöldi hönnuða og hér talar Sigurður Einarsson skipulagshöfundur og arkitekt hjá Batteríinu um hönnun svæðisins og gæði staðsetningarinnar:

Næg bílastæði

Við Vetrarbraut verður sérstaklega gott aðgengi að bílastæðum, en að meðaltali eru 1,5 stæði fyrir hverja íbúð. Öllum íbúðum fylgir eitt sérmerkt bílastæði og auk þess verða stæði til sameiginlegra nota fyrir íbúa og gesti.

Ríkulegur fjöldi bílastæða gerir daglegt líf einfaldara og veitir íbúum aukinn sveigjanleika, hvort sem um er að ræða fleiri en einn bíl á heimili eða heimsóknir fjölskyldu og vina.

Arnar Þór Jónsson, aðalarkitekt húsanna, segir frá því hvernig hönnuninni var breytt til að fjölga bílastæðum og mæta betur þörfum íbúa:

Gæði staðsetningarinnar

Nálægðin við einstaka náttúru Heiðmerkur skapar mikil lífsgæði fyrir íbúa Vetrarbrautar. Golfvöllurinn er svo gott sem í bakgarðinum og fjölbreytt útivistarsvæði eru skammt undan.

Arnar Þór Jónsson, arkitekt verkefnisins, segir hér frá þessari frábæru staðsetningu og öllu sem hún býður upp á:

Tímalaus hönnun

Við hönnun var lagt upp með að innréttingarnar væru praktískar og tímalausar. Hugsað er fyrir hverju atriði, hvar er best að geyma glösin og að ofnhurðin sé ekki að rekast í aðra hluti.

Telma Guðmundsdóttir innanhússarkitekt talar hér um mikilvægi þessarra hluta í hönnuninni innanhúss:

Loftgæði

Í hverri íbúð er sjálfstætt loftskiptakerfi sem tryggir stöðuga loftræstingu og stuðlar að heilnæmu innilofti. Kerfið dregur úr raka og óæskilegum ögnum í loftinu, bætir loftgæði og stuðlar jafnframt að auknum orkusparnaði. Íbúar geta stjórnað kerfinu innan sinnar íbúðar og aðlagað það að eigin þörfum.

Arnar Þór Jónsson, arkitekt verkefnisins, segir hér frá þeim kröfum sem gerðar voru til loftgæða og hljóðvistar í húsunum:

Yfirlit yfir verkefnið

Það er stór ákvörðun að fjárfesta í íbúðarhúsnæði og mikilvægt að hafa yfirlit yfir alla þætti í ákvörðunarferlinu. Hér til hliðar er heildarmynd af viðtölunum sem tekin voru við hönnuði verkefnisins: