Græni trefillinn er samheiti sem notað hefur verið yfir skógræktar- og útivistarsvæðin á útmörkum sveitarfélaganna sjö sem mynda höfuðborgarsvæðið. Hlutverk Græna trefilsins er að umlykja og skýla byggð og fjölþættri útivist sem fram fer á útmörkum, með fjölbreyttum skógum og ræktun, en að baki liggur einnig hugmyndafræði þar sem áhersla er á bætt umhverfi, aukin lífsgæði, bætta lýðheilsu og vatnsvernd. Segja má að Græni trefillinn sé næsti nágranni Vetrarmýrar.


Í skipulagi hverfisins er gert ráð fyrir fjölbreyttu kerfi göngu- og hjólastíga sem tengir Vetrarmýri við nærliggjandi útivistarsvæði. Fyrirhuguð jarðbrú yfir Reykjanesbraut mun jafnframt bæta tenginguna við miðbæ Garðabæjar verulega.
Ein af meginhugmyndum deiliskipulagsins er Vífilsstaðaás, breiður og grænn stígur með trjágöngum sem liggur frá Vífilsstöðum og upp á Hnoðraholt. Stígakerfið, ásamt nálægðinni við golfvöll og íþróttasvæði, gerir Vetrarmýri að ákjósanlegum stað fyrir virkan lífsstíl og fjölbreytta hreyfingu allt árið um kring.

Leiksvæði verða innan lóða fjölbýlishúsanna og fjölbreytt útivistarsvæði fléttast inn í hverfið. Búðakinn verður stórt, grænt svæði sem verður einskonar hverfisgarður sem tengist beint jarðbrúnni yfir Reykjanesbraut. Sú tenging mun gera greiðari leið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur yfir í önnur hverfi Garðabæjar.
Garðarnir, leiksvæðin og önnur opin svæði eru hugsuð sem aðlaðandi dvalarstaðir með fjölbreyttum möguleikum til leiks, útivistar og samveru fyrir íbúa og gesti.


Við Vetrarbraut er golfvöllurinn svo gott sem í bakgarðinum og því stutt fyrir golfáhugafólk að halda út á völl. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, býður upp á öflugt félagsstarf og golfkennslu fyrir ólíka aldurshópa og getustig. Í félagsheimilinu eru einnig golfhermar sem gera kylfingum kleift að æfa og spila yfir vetrarmánuðina.